Ef veitt eru verðlaun heima fyrir hegðun í skólanum er þetta yfirleitt ekki vandamál. En ef nauðsynlegt er að veita verðlaun áður en barnið er farið úr aðstæðunum má koma í veg fyrir það með því að veita aukaverðlaun ef barnið sýnir áfram viðeigandi hegðun. Ef verið er að nota táknbundið styrkingarkerfi er hægt að veita aukastig þegar barnið sýnir áfram viðeigandi hegðun, jafnvel er hægt að koma því þannig fyrir að aukastigin séu talin saman í lok skólavikunnar og ef þau ná ákveðnum fjölda fær barnið aukaverðlaun. Hafa verður í huga að það má alls ekki taka verðlaun af barninu sem það hefur þegar unnið sér inn, hversu illa sem það hagar sér síðar.
