Fyrirbyggjandi aðgerðir/áreitisstjórnun í skólastofum

Þó afleiðingar hegðunar séu mikilvægar til að breyta og auka tíðni viðeigandi og óviðeigandi hegðunar skipta áreiti og/eða atburðir sem koma á undan hegðun miklu máli. Þetta þarf að hafa í huga þegar breyta á hegðun.

Fyrirbyggjandi aðgerðir felast í því að breyta þessum áreitum og/eða atburðum sem koma á undan hegðun og hafa þannig áhrif á líkurnar á því hvort að hegðun komi fram. Hafa verður í huga að fyrirbyggjandi aðgerðir geta verið nauðsynlegar ef inngrip á að hafa áhrif á hegðun barns en eru þó líklega ekki nægjanlegar til að breyta óviðeigandi hegðun.

Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn óæskilegri hegðun í tíma geta falist í því að láta nemandann sitja fremst í skólastofunni eða í samverustundum. Það minnkar líkurnar á að óviðeigandi hegðun leiði til athygli frá samnemendum og auðveldar kennaranum að fylgjast með þessum tiltekna nemanda og minna hann á viðeigandi hegðun þegar hann sýnir til dæmis vanvirkni eða truflandi hegðun. Einnig ef nemandi fær fiktidót í hendurnar í til dæmis samverustund til að koma í veg fyrir að nemandinn fari að pota í aðra nemendur. Barn fær verkefni við hæfi miðað við hann sjálfan, ekki jafnaldra, verkefni sem það getur örugglega leyst en er ekki of auðvelt heldur – þá er ólíklegra að barninu fari að leiðast og sýni óæskilega hegðun.

Það að nemandinn sitji nálægt kennaranum auðveldar það kennaranum að hrósa honum fyrir viðeigandi hegðun, en þegar verið er að kenna nýja hegðun skiptir máli að hrósa nemendum oft þegar þeir sýna nýju hegðunina.

Athugið að ekki er verið að beita refsingu með því að láta nemandann sitja fremst í skólastofunni. Til að tryggja að nemandinn upplifi ekki að verið sé að refsa honum/henni getur reynst vel að kennarinn breyti sætaskipan í öllum bekknum.

Önnur fyrirbyggjandi aðgerð til að minnka líkurnar á óæskilegri hegðun gæti verið að leyfa ekki tveimur eða fleiri nemendum að sitja saman sem eiga það til að sýna þá hegðun. Ef nemendur sem sýna óæskilega hegðun sitja saman geta þeir styrkt hvern annan þegar hegðunin er sýnd.

Nemendur sem sýna litla vinnusemi eða truflandi hegðun ættu aðeins að hafa á borðinu sínu það sem þeir þurfa til að leysa það verkefni sem þeir eru að fást við hverju sinni. Nemandi sem á að æfa skrift en er með liti á borðinu sínu gæti farið að teikna og lita í stað þess að læra.

Varist einnig að setja nemendur sem eru auðtruflaðir nálægt glugga eða annars staðar þar sem truflun er líkleg.