Hópstyrkingarskilmáli fyrir að veita óviðeigandi hegðun ekki athygli

Það getur verið vandasamt að fá jafningja til að hunsa óviðeigandi hegðun nemanda. Hópstyrkingarskilmáli fyrir barnahópinn er hagkvæm aðferð þegar minnka á tíðni óviðeigandi hegðunar hjá nemanda sem styrkt er af athygli annarra nemenda. Settur er styrkingarskilmáli fyrir allan barnahópinn sem felur í sér að umbunað er fyrir hegðun hvers og eins nemanda eða þá hegðun hópsins „að veita óviðeigandi hegðun ekki athygli“ ef tíðni hennar helst undir tilteknu viðmiði í ákveðinn tíma. Til að mynda ef nemendur veita truflandi hegðun nemanda athygli ekki oftar en fimm sinnum á einni kennslustund fá þeir lýsandi hrós eða verðlaun. Eða ef barn á það til að pirra annað barn er hinu barninu kennt að hunsa það og það fær þá lýsandi hrós þegar það gerir það. Dæmi um umbunarkerfi.