- Gott er að kenna öllum bekknum að hrósa öðrum fyrir að sinna verkefnum sínum og að hlæja ekki þegar bekkjarfélagar sýna óviðeigandi hegðun.
- Mikilvægt er að útskýra fyrir hópnum og sýna hvernig hegðun eigi að hrósa fyrir og teikna/skrifa það jafnvel upp á töflu eða uppá vegg á deildinni eða hafa útprentaða mynd af slíkri hegðun uppi á vegg.
- Best er að hafa þá reglu að eingöngu megi hrósa þeim sem sitja við hliðina á hverju barni.
- Fyrir að fara eftir þessu getur barnahópurinn unnið sér inn stein (eða eitthvað annað sem hentar betur).
- Á 10 mín fresti er barnahópnum gefin endurgjöf, þeim er sagt hvernig þeim gengur að fara eftir nýju reglunum. Þegar kennara finnst þau hafa staðið sig vel er steinn settur í stóra skál á borði kennara. Mikilvægt er að rökræða ekki við barnahópinn um af hverju hann fékk ekki stein, heldur benda þeim á að vanda sig því þau fá strax annað tækifæri.
- Börnin þurfa að hafa á hreinu fyrir hverju þau eru að safna sér og hversu marga steina þau þurfi til þess að ná markmiðinu.
- Ef börnin hafa ekki áhuga á því sem þau eru að vinna sér inn mun umbunarkerfið ekki bera árangur.
- Gagnlegt er að „færa” umbunarkerfið yfir á aðra hegðun áður en hætt er að nota það, þ.e. þegar árangur hefur náðst er hægt að fá hópinn til að velja aðra hegðun sem þau vilja æfa, nota umbunarkerfið á þá hegðun um tíma og hætta þegar árangur hefur náðst. Þannig reynum við að koma í veg fyrir að börnin sakni umbunarkerfisins og sýni óæskilega hegðun til þess að fá kerfið til baka.
