DRL (differential reinforcement of low rates of behavior)

Er aðferð sem felst í að viðhalda ákveðinni hegðun í lágmarki með því að verðlauna fyrir lága tíðni þeirrar hegðunar. Það má haga slíkum skilmálum meðal annars með því að umbuna þegar minna en ákveðin tíðni tiltekinnar hegðunar hefur átt sér stað á einhverju ákveðnu tímabili, til dæmis þegar ljótt orðbragð hefur átt sér stað sjaldnar en x sinnum yfir skóladaginn/í kennslustund.

Þegar ætlunin er að minnka tíðni óviðeigandi hegðunar ásamt því að auka viðeigandi hegðun er betra að nota bæði DRL skilmála og að umbuna fyrir viðeigandi hegðun. Ef aðeins er verðlaunað fyrir lága tíðni óviðeigandi hegðunar er óvíst að viðeigandi hegðun komi í stað þeirrar óviðeigandi.