Notkun stýringar hætt

Það eru til fjórar ólíkar leiðir til að til að hætta notkun stýringar. Hvaða leið er best fer eftir aðstæðum og því hve háð barnið er stýringunni:

Það eru til fjórar ólíkar leiðir til að til að hætta notkun stýringar. Hvaða leið er best fer eftir aðstæðum og því hve háð barnið er stýringunni:

  1. Það má skyndilega hætta að nota stýringu þegar það virðist ekki lengur þörf á að nota hana lengur.
  2. Það má smám saman minnka styrk stýringarinnar. Til dæmis ef munnleg stýring var notuð til að breyta hegðun má smám saman lækka röddina þegar stýringunni er beitt eða ef skrifleg stýring var notuð má smá saman skrifa daufar.
  3. Einnig má hætta notkun stýringar með því að taka hluta af stýringunni smá saman í burtu. Dæmi: Munnleg stýring var notuð til að kenna barni margföldunartöfluna. Þá má minnka notkun stýringar með eftirfarandi hætti:
    1. Stýring: Hvað er 3*4? Segðu 12
    2. Afmáun stýringar hefst: Hvað er 3*4? Segðu tó…
    3. Áframhald afmáunar: Hvað er 3*4? Segðu…
    4. Afmáun lýkur: Hvað er 3*4? Spurningin er ekki stýring hegðunar heldur áreiti sem á að nægja til að hegðun komi fram
      Annað dæmi:
    5. Stýring: Barn er leitt inná bað til að fara á klósettið
    6. Afmáun stýringar hefst: Kennari segir „nú skaltu fara á klósettið“ og bendir í rétta átt
    7. Afmáun lýkur: „Kennari segir nú skaltu fara á klósettið“ sem eru fyrirmæli
  4. Einnig er hægt að láta lengri og lengri tíma líða á milli þess að stýringin birtist og hegðunin á að eiga sér stað. Að lokum er stýringunni algjörlega hætt.

Mikilvægt er að hrósa barni þegar æskileg hegðun á sér stað, hvort sem hún sé tilkomin með miklum stýringum eða engum stýringum eða einhversstaðar þarna á milli.