Það er einstaklingsbundið hvað börnum finnst eftirsóknarvert og því er breytilegt á milli barna hvað er hægt að nota sem verðlaun eða viðurkenning fyrir góða hegðun. Oft er best að spyrja barnið einfaldlega hvað því þykir eftirsóknarvert til að komast að því hvað sé hægt að nota sem verðlaun fyrir viðeigandi hegðun. Það er gott ef barnið getur valið á milli nokkurra verðlauna en það minnkar líkurnar á að barnið verði leitt á þeim. Ef barn er búið að fá sömu verðlaunin oft hætta þau stundum að vera eftirsóknarverð (það getur verið ástæða þess að umbunarkerfi „hætta að virka“).
Listi yfir möguleg verðlaun veitt fyrir viðeigandi hegðun af kennara:
- Auka eða lengri frjáls tími
- Fá að vera hópleiðtogi
- Fá að dreifa námsgögnum til annarra
- Taka saman námsgögn af hópnum og skila til kennara
- Skreppa að ljósrita fyrir kennarann
- Skreppa til að ná í eitthvað fyrir kennarann
- Fá að fara á bókasafnið
- Hlusta á tónlist (velja lag)
- Fá að velja lag sem er spilað í tónmennt
- Teikna eða mála
- Nám að eigin vali
- Púsla
- Spila
- Velja umræðuefni í tíma
- Velja sögu fyrir sögustund
- Fá að aðstoða kennara
- Fá afnot af tölvu
- …
Listi yfir möguleg verðlaun veitt fyrir viðeigandi hegðun af foreldrum:
- Dót eða spil
- Bækur
- Matur eða drykkur sem barninu þykir góður
- Bjóða vin í mat
- Föt
- Fara á leikvöll
- Leika með vinum
- Sögustund fyrir háttatíma
- Náttfatapartý
- Fara á íþróttaleik eða í sund saman
- Horfa á sjónvarp saman, kósýkvöld eða hafa popp þegar horft er á
- Hjálpa foreldrum að elda kvöldmatinn, baka, taka til eða hella upp á kaffi
- Fá eftirrétt, nammi eða popp
- Fá að fara seinna að sofa
- Fara í bíó, keilu, bíltúr eða hjólatúr
- Velja hvað er í kvöldmatinn
- Baka
- Fá að skipuleggja hvað eigi að gera um helgi (annan eða báða dagana)
- Lita
- Fá að spila uppáhalds tónlist
- Fá að leigja kvikmynd
- …
Stundum getur verið erfitt að fá foreldra til að veita verðlaun fyrir viðeigandi hegðun, yfirleitt vegna þess að þeir gleyma því og þarf þá að finna leiðir til að minna þá á, til dæmi miða sem fer heim með barninu, sms eða annað. Það er mjög mikilvægt að verðlaunin séu alltaf veitt þegar barnið býst við þeim! Til dæmist strax og foreldri kemur heim, eða strax eftir kvöldmat, eða á þeim tíma sem hefur verið um rætt.
Sumum finnst rangt að veita barni verðlaun fyrir eitthvað sem aðrir gera án verðlauna. Því er til að svara að við erum öll ólík og eigum miserfitt með ákveðna hluti. Allir vita að það er erfitt að breyta út af vana og barn sem hefur vanið sig á óviðeigandi hegðun af einhverjum ástæðum á líka erfitt með það að hætta þvi og finnst það erfitt. Þegar málið er skoðað í kjölinn er það aldrei barninu „að kenna“ að slæmur ávani hefur myndast og fengið að viðgangast.
Það virkar yfirleitt betur til lengri tíma litið að veita verðlaun fyrir æskilega hegðun en að refsa fyrir óæskilega og það hefur ekki slæmar aukaverkanir eins og refsingar geta haft þegar þær eru notaðar einar og sér og stigmagnast.
Hægt er að búa til umbunarkerfi fyrir systkini til að gæta réttlætis, flest börn þurfa að bæta sig í einhverju, æfa sig eða læra eitthvað nýtt.
Skoða einnig kostnað verðlauna.
