Styrking kallast hver sá umhverfisþáttur sem birtist eða hættir að birtast í kjölfar hegðunar og verður til þess að hegðunin eykst í tíðni. Refsing kallast sá umhverfisþáttur sem birtist eða hættir að birtast á eftir hegðun og verður til þess að hún minnkar í tíðni. Þegar áhrif eru höfð á afleiðingu hegðunar með þeim árangri að hún annað hvort eykst eða minnkar í tíðni er talað um virka skilyrðingu. Styrking og refsing eru stór þáttur í virkri skilyrðingu.
