Um ráðin

Ráðavefurinn inniheldur raunprófuð ráð fyrir kennara og annað fagfólk. Tilgangurinn með Ráðavefnum er að gefa kennurum og öðru starfsfólki skóla upplýsingar um hvernig eigi að draga úr hegðunarvandamálum í skólaumhverfi og bæta þannig líðan nemenda og starfsfólks. Betra skólaumhverfi stuðlar að bættum námsárangri og félagsþroska nemenda.

Á Ráðavefnum má finna ráð við ýmsum hegðunarvanda. Eingöngu eru gefin ráð sem byggjast á raunprófunum með tilraunum sem hafa verið endurteknar og hafa sýnt hvort aðferð hefur áhrif á hegðun eða hvað þurfi til svo hún hafi áhrif. Ætlunin er að gefa kennurum og öðru starfsfólki skóla upplýsingar á íslensku, stundum einfaldaðar, í þeirri von um að það geti nýtt sér upplýsingarnar og ráðin í sínu daglega starfi. Hluti ráðanna eru sérhæfð á þann hátt að þau eiga við eftir því hver  tilgangur hegðunarinnar er.

Þessi ráð krefjast því þess að notandi vefsins hafi fylgst með hegðuninni sem veldur vanda mjög markvisst í ca. 5-10 skipti, t.d. með beinu áhorfi, og hafi skráð í hvert skipti ákveðnar upplýsingar um hegðunina. Þessi mæling á hegðun er einn hluti virknimats. Í virknimati eru teknar saman upplýsingar um hegðun með viðtölum við mismunandi upplýsingagjafa, hegðunarskráningu þegar fylgst er með hegðun beint, með áhorfi eða með virknigreiningu. Þar sem séfræðiþekking, reynsla og mat fagmanns þarf til þess að gera virknimat eða virknigreiningu rétt verður það eingöngu kynnt á yfirborðslegan hátt hér. En það verða gefnar upplýsingar um skráningu hegðunar sem nota má til þess að gera sér hugmynd um hver tilgangur hegðunar getur verið í hverju tilfelli. Mjög oft nægir slíkt til árangursríks inngrips í hegðunarvanda. Mælt er með því að lesandi leiti sér aðstoðar hjá sérfræðingum ef lesturinn nægir ekki til að leysa þann vanda sem hann leitar lausnar við eða fái ráðgjöf frá upphafi ef sú ráðgjöf er aðgengileg.

Mælt er með því að þeir sem leita sér ráða á þessari síðu vegna óæskilegrar hegðunar setji fram tilgátu um tilgang hegðunar eftir að hafa skoðað hegðunina í nokkra daga og skoðað upplýsingarnar, athuga hvort mynstur sést í upplýsingunum. Þá er hegðunin skoðuð og athugað hvað er það sem fylgir hegðuninni, er það athygli annarra, losna undan kröfum eða jafnvel vald yfir öðrum. Jafnframt er mælt með því að þeir nýti sér ráð sem hafa verið útbúin út frá mismunandi tilgangi hegðunar. Það að skoða tilgang hegðunar skiptir öllu máli þegar kemur að vali á inngripi til að breyta henni. Tilgangur eða hlutverk hegðunar getur verið mjög misjafn eftir sögu hegðunarinnar, aðstæðum og hverju hún hefur skilað áður. Mynstur skapast sem viðhelst.

Hluti ráðanna er sérhæfður á þann hátt að þau fara eftir tilgangi eða hlutverki hegðunar sem um ræðir. Þar sem sérfræðiþekkingu og færni þarf til þess að beita þessum aðferðum rétt verður bakgrunnur þeirra kynntar sem og aðferðirnar sjálfar. Þessi ráð krefjast þess að hegðunin sem veldur vanda sé skoðuð og skráð niður. Þetta er vegna þess að ólíkir umhverfisþættir sem hegðunin er í samspili við geta kallað fram og viðhaldið óæskilegri hegðun og skiptir því máli að velta fyrir sér hverjir þessir þættir geta mögulega verið áður en inngrip á sér stað. Til dæmis getur vikudagur, tími dags, samhengi og eða aðstæður skipt máli hvort hegðun á sér stað eða ekki.

Ef inngripið sem var valið virðist ekki virka eftir nokkur skipti þarf líklega að athuga hvort leita þurfi aðstoðar samkennara eða til fagmanns. Þá er mjög gagnlegt að láta skráningarblöð um hegðunina og allar upplýsingar um hana fylgja tilvísun eða beiðni um aðstoð.