Nemandinn á erfitt með að skilja fyrirmæli og/eða leiðbeiningar

Nauðsynlegt er að leita fagaðstoðar til að fást við vandann. Mikilvægt er að auka notkun tákna, mynda og sýnikennslu. Ef um tungumálaerfiðleika er að ræða þarf að sjálfsögðu að útvega kennara/leiðbeinanda sem talar tungu barnsins til að aðstoða það á meðan það er að læra nýja málið. Mikilvægt er einnig að börn njóti kennslu í móðurmáli sínu til að fara ekki á mis við málþroska.