Barn neitar að fara í skóla eða hefur skólatengdan kvíða

  • Lesið einnig almenn ráð vegna kvíða.
  • Mikilvægt er að vinna með kvíða barnins í samvinnu við þjónustuteymi þess og tengda fagaðila.
  • Mikilvægt er að skipuleggja endurkomu í skólann í smáum skrefum ef barnið er hætt að mæta og vera í nánu samráði við foreldra.
  • Það getur aðstoðað barnið við að mæta í skólann ef kennari eða annar starfsmaður skólans getur tekið á móti barninu. Þetta inngrip þarf síðan að taka aftur út en gott er að halda sig við sömu rútínuna í nokkra daga í röð áður en breyting er gerð.
  • Gott er að velja ákveðinn stað í skólanum sem barnið getur farið á þegar það er óöruggt, til dæmis til námsráðgjafa, til sérkennara/stjóra eða hjúkrunafræðings. Mikilvægt er að aðilinn sem tekur á móti barninu sé vel inni í máli þess og geti rætt við það um kvíðann.
  • Gott er að barnið geti tekið sér stutta pásu þegar það þarf á því að halda, til dæmis getur það fengið verkefni á borð við að fara til ritarans að ná í eitthvað fyrir kennarann eða færa ritaranum skilaboð. Gott er að kenna barninu merki sem það getur gefið þegar það þarf að komast frá. Sendið barnið á örugga staðinn ef ykkur finnst þörf á því.
  • Mikilvægt er að barnið viti hvað gerist eftir að skóla lýkur, þ.e. mun mamma eða pabbi sækja barnið, mun það taka strætó heim, verður einhver heima? Gott er að benda foreldrum á að útbúa plan um lok dagsins og að barnið verði að geta treyst þessu plani.
  • Gott er að nota áþreifanlega umbun ef barnið fór í skólann og hélt sig þar allan daginn. Umbun er í höndum foreldra.
  • Skoðið að hverju kvíðinn beinist; er barnið til dæmis hrætt við einhvern, gengur því illa félagslega eða námslega? Mikilvægt er að skoða þetta með barninu og reyna að leysa hvern þann vanda sem gæti verið fyrir hendi.
  • Ef algengt er að barnið þurfi að tala fyrir framan aðra getur verið gott að minnka þessa kröfu til muna, þ.e. fá barnið til að tala mjög stutt og smám saman lengja tímann. Ef til vill hræðist barnið þetta svo mikið að það vill ekki fara í skólann og getur þá skipt máli að skoða þennan þátt og útbúa plan um hvenær og hversu lengi barnið þarf að tala fyrir framan aðra.
  • Stundum getur verið gott að leyfa barninu að taka próf með fáum nemendum í rólegum aðstæðum.
  • Ef til vill getur verið gott að setja í gang vinaleik í bekknum eða fá eldri bekk til að vingast við bekk barnsins, og þannig reyna að mynda öryggi og vellíðan í skólanum.
  • Gott er að nota samskiptabók til þess að passa að foreldrar séu vel inni í málum barnsins.
  • Félagsfærninámskeið myndi gagnast þessum hópi barna vel.
  • Mikilvægt er að gera ráð fyrir að barnið getur reynt að stinga af úr skólanum. Er eitthvað sem hægt er að gera til að passa að svo fari ekki? Líklegast þarf að fá starfsfólk til að fylgjast vel með barninu og biðja nána vini barnsins að láta starfsfólk vita ef þau hætta að sjá barnið. Einnig þarf að ræða við foreldra um hvernig þeir ætli að taka á því ef barnið stingur af úr skólanum.