Ráð við prófkvíða

  • Lesið einnig ráð um kvíða.
  • Gott er að gefa barninu auka tíma til þess að takast á við verkefni og próf. Það getur einnig gagnast barninu vel að fá að taka próf í öðrum aðstæðum en önnur börn.
  • Ef mögulegt er að leyfa barninu stundum að taka munnlegt próf í stað skriflegs þá getur það minnkað kvíða og óöryggi.
  • Mikilvægt er að hrósa barninu fyrir hegðun sína að læra, vera tilbúinn til að prófa, leggja sig fram en ekki einkunnir.
  • Passið að veita barninu ekki óraunhæfa hughreystingu, segja til dæmis: „ef þú lærir þá muntu ná prófinu”, betra að segja: „því meira sem þú lærir, því betur undirbúinn ertu og þá er líklegra að þú náir prófinu”.
  • Gott er að spyrja barnið hvað sé það versta sem geti gerst ef því gengur illa í prófinu. Það versta sem barninu dettur í hug er líklega ekki svo hræðilegt og er þá hægt að ræða það við barnið.