Aðferð til að kenna barni viðeigandi leiðir til að bregðast við aðstæðum í stað þess að sýna mótþróa

  1. Fyrst þarf að kenna barninu að bera kennsl á þær aðstæður sem það sýnir mótþróa. Það er gert með því að fylgjast með barninu og benda því síðan á aðstæðurnar sem það hagar sér á óviðeigandi hátt. Einnig má nota ímyndaðar aðstæður en þá lýsir kennarinn aðstæðunum fyrir barninu.
  2. Barnið er síðan látið ímynda sér hvernig það getur brugðist við þessum aðstæðum á árangursríkan máta. Ef því gengur illa að finna aðrar mögulegar lausnir á vandanum er því hjálpað að finna lausnir. Gott er að sýna barninu með hlutverkaleik hvernig það getur brugðist við raunverulegum eða ímynduðum aðstæðum á árangursríkan hátt og þetta æft reglulega.
  3. Hugmyndir þess um að aðrir séu að koma illa fram við það eru skoraðar á hólm. Lagt er til að kannski sé hægt að túlka atvikið á annan hátt. Reynt er að hjálpa barninu að sjá atvikin frá sjónarhorni hins aðilans. Gott getur verið að það prófi að leika hinn aðilann einnig í hlutverkaleik. Gætið þess þó alltaf að barnið upplifi að tilfinningar þess eigi rétt á sér út frá túlkun þess á atvikinu. Börn eiga oft í erfiðleikum með að skilja annarra sjónarhorn, svo búist ekki við miklum árangri strax en æfingin skapar meistarann.

Gott getur verið að kynna aðferðina fyrir foreldrum sem geta notað hana heima.