Þegar verðlaun eru notuð til að fá fram og viðhalda viðeigandi hegðun þarf alltaf að hafa í huga að afmáun er nauðsynleg, það er þegar búið er að auka tíðni þeirrar hegðunar sem sóst var eftir þarf smám saman að minnka verðlaunin fyrir viðeigandi hegðun.
Afmáun felst í því að veita verðlaun æ sjaldnar þar til verðlaunaafhending er í svipuðu hlutfalli og hjá flestum börnum.
Þegar barnið er farið að haga sér í samræmi við þær kröfur sem eru gerðar til annarra getur afmáun hafist. Ef rétt er farið að leiðir afmáun ekki til þess að barnið fari aftur að haga sér illa. Ástæðan er sú að barnið hefur tileinkað sér nýjar venjur og tengt ánægjulegar tilfinningar við hrós kennara og foreldra fyrir að auka færni sína. Aukin færni í að vera í félagslega viðeigandi eða aukinn árangur í einhverri námsgrein skilar barninu yfirleitt meira sjálfstrausti, nýjum möguleikum og ánægjulegri stundum.
Hrós og athygli ætti þá að nægja í framhaldinu til að viðhalda viðeigandi hegðun hjá þessu barni eins og hjá hinum nemendunum. Einnig lærir barnið með tímanum að finna sjálft til ánægju þegar það hefur staðið sig vel þannig að hrós og athygli annarra verður minna mikilvæg, það fer að vera ánægt með sig.
Ef óviðeigandi hegðun byrjar að aukast á ný þegar afmáun hefst þarf að byrja aftur að verðlauna fyrir viðeigandi hegðun. Mögulegt er afmáun hafi hafist of snemma eða að verðlaunum hafi fækkað of hratt.
Gullna reglan er að gera þetta í eins smáum skrefum og hægt er og taka skref sem barnið er samþykkt af prófa. Það getur tekið barn lengri tíma að fá það á tilfinninguna að það geti eitthvað sérstaklega ef barnið hefur áður upplifað skort á færni.
Dæmi um afmáun: Nemandi hefur fengið umbun á hverjum skóladegi auk helgarverðlauna fyrir ákveðna frammistöðu yfir vikuna og náð að standast 85% kröfur í tvær vikur í röð. Þá væri hægt að hætta að verðlauna fyrir góða frammistöðu á hverjum skóladegi og verðlauna í staðinn bara á þriðjudögum fyrir góða frammistöðu á mánudag og þriðjudag. Svo væri hægt að verðauna á föstudögum fyrir góða frammistöðu á miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Náist þetta yfir vikuna þá er hægt að bjóða upp á bónusverðlaun fyrir að hafa fengið verðalunin á þriðjudegi og borga þau á laugardegi. Sama með föstudagsverðlaunin og væru þau borguð út á sunnudegi ef þau náðust. Þegar þetta hefur gerst í nokkrar vikur þá er hægt að hætta með þriðjudagsverðalunin en halda föstudagsverðlaunum fyrir góða frammistöðu alla vikuna og líka halda bónusverðlanunum bæði á laugardag og sunnudag. Næsta skrefið eftir nokkrar vikur væri að halda sunnudagsverðlaunum en hætta með laugardagsverðlaunin. Verðlaun einu sinni í viku fyrir góða frammistöðu alla vikuna fá flest börn eins og nammi á laugardögum o.s.frv. en það væri líka hægt að minnka þau með áframhaldandi góðrar frammistöðu.
Athugið að ef slæm hegðun hefst á ný þrátt fyrir að ofangreindum leiðbeiningum sé fylgt er nauðsynlegt að komast að tilgangi hegðunarinnar, rjúfa virknisambandið og kenna nýjar og æskilegri leiðir til að fá hinar eftirsóttu afleiðingar. Mælt er með að leitað sé aðstoðar fagfólks.
