Fyrirbyggjandi aðferðir gegn ljótu orðbragði

Fyrirbyggjandi aðferðir gegn ljótu orðbragði geta falist í því að láta nemandann sitja fremst í skólastofunni og nálægt kennaraborðinu. Það minnkar líkur á að óviðeigandi hegðun leiði til athygli frá samnemendum og auðveldar kennaranum að fylgjast með þessum tiltekna nemanda og minna hann á viðeigandi hegðun þegar hann notar ljótt orðbragð. Það að nemandinn sitji nálægt kennaraborðinu auðveldar kennaranum að hrósa honum fyrir viðeigandi hegðun. Það verður að hafa í huga að ekki er verið að beita refsingu með því að láta nemandann sitja fremst í skólastofunni og nálægt kennaraborðinu. Til að tryggja að svo sé ekki getur reynst vel að kennarinn breyti sætaskipan í öllum bekknum.

Önnur fyrirbyggjandi aðgerð til að minnka líkurnar á ljótu orðbragði í kennslustundum er að leyfa ekki tveimur eða fleiri nemendum að sitja saman sem eiga það til að nota slíkt orðbragð. Ef tveir eða fleiri nemendur sem nota ljótt orðbragð sitja saman geta þeir lært að viðhalda þeirri hegðun þegar annar nemandinn fær neikvæða eða jákvæða athygli fyrir orðbragðið. Mikilvægt er að hrósa og veita athygli fyrir fallegt málfar eða fyrir kurteisi í samskiptum eða fyrir kurteislega tjáningu.