Sum börn eiga erfiðara en önnur með að skipuleggja hvernig þau ætla að vinna verkefni. Verkefnið getur virst óyfirstíganlegt frá upphafi og barnið gefst upp án þess að reyna. Börn með ADHD eiga oft í slíkum erfiðleikum. Sjá ráð við einbeitingarvanda.
Yfirstíganleg verkefni
Meiri líkur eru á því að barnið hefji vinnu þegar verkið er yfirstíganlegt. Til dæmis má segja því að leysa hluta verkefnisins og rétta svo upp hönd þegar því er lokið, þannig fær barnið stutta pásu á milli verkefna.
Búta niður verkefni
Það hefur reynst nemendum mjög vel að búta efni niður til að verkefni virki yfirstíganleg. Til dæmis að setja stimpil eða einhvers konar merki við línu eða dæmi í bók eða verkefnahefti svo að barnið viti hvenær það hefur lokið verkefninu eða hvenær það megi taka pásu. Til dæmis væri hægt að hafa slíkan límmiða á 2-3 stöðum á einni blaðsíðu svo að líklegra sé að barninu finnist verkefnið yfirstíganlegt. Gagnlegt er að leyfa barninu að taka þátt í þessari skiptingu svo það geti gert þetta sjálft síðar meir.
Skýr uppsetning verkefna
Uppsetning verkefna getur aðstoðað barnið við að skilja hvað ætlast er til af því. Það getur gagnast vel að hafa:
o Sem minnst á blaðsíðunni sem ekki tengist verkefninu.
o Stórt letur og skýrt og stutt orðalag á verkefnunum.
o Mikilvæg orð í fyrirmælum/leiðbeiningum undirstrikuð eða í öðrum lit.
o Fáar spurningar/dæmi/verkefni á hverju blaði.
Stutt verkefni
Líklegra er að börnum takist að klára verkefni ef hvert verk virðist vera skýrt, stutt og yfirstíganlegt. Takist barni að klára verkefni, jafnvel mörg stutt í hverjum tíma, eru meiri líkur til þess að það sé sáttara við eigin árangur og hafi þannig með tímanum meiri ánægju af verkefnavinnu.
Byrja á auðveldari verkefnum
Ef nemandi vantreystir sér er gott að byrja á viðráðanlegum verkefnum og vinna sig upp í þau erfiðari.
Hjálpa barninu að skipuleggja verkefni
Börn með ADHD eiga oft erfitt með að skipuleggja eigin verkefni. Þau virðast stundum ekki læra af mistökum, halda til dæmis áfram að giska á rétt svar í stað þess að breyta um aðferð þrátt fyrir að svara ítrekað vitlaust. Það skiptir því máli að fylgjast með ef illa gengur og fá þau til að tala sig í gegnum vandann. Þau eiga oft auðveldara með að tjá sig munnlega en skriflega.
Kenna barninu leiðir til að takast á við verkefni
Gott er að kenna barninu leiðir til þess að takast á við verkefni.
Til dæmis er hægt að kenna barninu að gera skriflega spurningu á prófi þægilegri og yfirstíganlegri með því að:
- kenna barninu að strika undir spurnarorðið og nafnorðið (eða orð sem virðist vera mikilvægast) í spurningunni.
- Biðja barnið um að svara spurningunni út frá undirstrikuðum orðum.
- Fara í gegnum aðferðina með barninu nokkrum sinnum.
- Þegar nýjar leiðir eru kynntar getur skipt sköpum að nota einfalt umbunarkerfi.
