Góð hegðun- leikurinn (The Good behavior game) er mjög vinsæll til bekkjarstjórnunar og getur hann reynst gagnlegur bæði í leik- og grunnskólum. Það þarf að byrja á því að búa til reglur sem nemendur eiga að fara eftir en það getur verið gott að gera það í samvinnu við börnin, þ.e. leyfa þeim að koma með sínar skoðanir og taka tillit til þeirra. Reglur eru nákvæmlega útskýrðar og settar upp á myndræna vegu og/eða á skriflegt form upp á vegg. Bekknum er síðan skipt í tvennt. Ákveða verður hvort hópurinn byrji annað hvort með ákveðinn fjölda stiga en missi eitt stig fyrir hvert brot á reglu eða að hópurinn byrji hvern tíma með engin stig en kennari athugi fjórum sinnum í hverri kennslustund (ekki alltaf á sama tíma) hvort hóparnir séu að fara eftir reglum og gefi hópnum stig upp á töflu í hvert skipti sem svo er. Mikilvægt er að ákveða hvaða markmiði hóparnir þurfa að ná til að hafa náð árangri. Sá hópur getur til dæmis unnið sem nær fleiri stigum í lok tímans, eða að sá hópur eða báðir hópar vinna ef þeir ná markmiðum kennara. Sniðugt er að gefa börnunum stimpil á blað, lítið barmmerki eða annað sem auðvelt er í framkvæmd fyrir sigurinn. Þegar hver hópur hefur unnið fjórum sinnum geta þau unnið sér inn verðlaunin. Verðlaunin geta til dæmis verið frjáls tími í lok skóladagsins, að fá að koma með eitthvað sérstakt í skólann daginn eftir eða eitthvað slíkt. Gott er að nota lýsandi hrós fyrir góða frammistöðu einstakra barna og hópinn í heild sinni. Það er mikilvægt að væntingar til barnanna séu raunhæfar og sanngjarnar. Það má þó auka kröfurnar sem eru gerðar smám saman.
Í fyrstu getur verið gott að hóparnir þurfi aðeins að ná því viðmiði sem er sett í einni tiltekinni kennslustund og síðan má bæta við fleiri og fleiri kennslustundum þar sem þeir þurfa að standast kröfur kennara eftir því sem líður á inngripið. Það er mikilvægt að hafa í huga að leikurinn á að vera settur þannig upp að bæði liðin vinna í flestum tilfellum. Mögulegt er að passa upp á það með því að hafa markmið hvers tíma viðráðanleg, til dæmis er hægt að byrja á því að hafa eingöngu eina reglu í leiknum en smám saman bæta við reglum sem kennari gefur stig fyrir.
