Táknbundið styrkingarkerfi er umbunarkerfi/hvatningakerfi sem felst í því að tafarlaust eða eftir smá bið er verðlaunað fyrir viðeigandi hegðun með ”tákni” (stigum, límmiðum, gervipeningum eða annarri skiptimynt, stimplum eða öðru) sem seinna meir má skipta út fyrir eitthvað eftirsóknarvert, eins og dót og frjálsan tíma eða því sem barnið sækist eftir. Táknið brúar bilið á milli þess að viðeigandi hegðun á sér stað þar til sú hegðun barnsins er verðlaunuð og auðveldar því notkun á verðlaunum til að móta hegðun barna í kennslustofum.
Dæmi um táknbundið styrkingarkerfi er barn sem fær stig fyrir vinnusemi í kennslustundum. Ef það nær ákveðnum fjölda stiga yfir kennsludaginn fær það einhver verðlaun í lok dagsins, það getur jafnvel valið sér fríðindi eða hluti af lista sem hefur verið útbúinn. Oft fá foreldrar upplýsingarnar um frammistöðuna í skólanum og afhenda barninu verðlaunin heima. Yfir allan daginn er barnið að fá viðgjöf um frammistöðu sína, til dæmis eftir hverja kennslustund eða eftir hálfa kennslustund og svo aftur í lok kennslustundar og frammistaðan er skráð.
Kennari getur líka sett upp hvatningakerfið sem hann fylgir yfir daginn.
Aðstæður sem hægt væri að nota umbunarkerfið í væri ef til dæmis nemandi hefur náð að hafa hljóð í eina mínútu í samverustund fær hann tákn og ef hann nær 5 mínútum fær hann að gera eitthvað eftirsóknarvert.
Oft á tíðum geta hagstæðar afleiðingar ekki komið strax á eftir viðeigandi hegðun vegna aðstæðna heldur þarf einhver tími að líða frá því að viðeigandi hegðun á sér stað þar til verðlaun eru veitt. Slíkt er algengt í kennslustofum en þá geta börn til að mynda ekki fengið frjálsan tíma strax eftir að hafa reiknað eitt dæmi heldur þurfa þau að bíða þar til í lok kennslustundarinnar eða jafnvel í lok skóladagsins. Um að gera þá að nota hrós og viðgjöf óspart eftir að hegðun birtist og minna barni eða börnum á að áframhaldandi viðeigandi hegðun muni leiða til verðlauna.
Yfirleitt geta leikskólakrakkar fengið verðlaunin sín strax en gott er að útbúa táknbundið styrkingakerfi þegar notuð er hægfara námundun.
