Geðheilsumiðstöð barna

Þegar frumathugun hefur átt sér stað, yfirleitt hjá þjónustumiðstöð eða skólaskrifstofu, og sterkar vísbendingar hafa komið fram um athyglisbrest, ofvirkni eða svipuð frávik í hegðun eða líðan hjá börnum á aldrinum fimm til tíu ára er máli barnsins yfirleitt vísað í nánari greiningu til Geðheilsumiðstöðvar barna (GMB). Þeir aðilar sem geta vísað í nánari greiningu til GMB eru fagfólk heilbrigðisstofnana, þjónustumiðstöðva, skólaskrifstofa og sjálfstætt starfandi sérfræðingar.

Geðheilsumiðstöð sér um greiningu þroska- og hegðunarfrávika á höfuðborgarsvæðinu og öðrum landsvæðum ef ekki er völ á slíkri þjónustu í nálægu umhverfi fjölskyldunnar.

Vísað er í frumgreiningu til GMB ef áhyggjur vakna af þroska eða hegðun barna að sex ára aldri. Þeir aðilar sem mega vísa í frumgreiningu til GMB er fagfólk heilbrigðisstofnana, barnalæknar og aðrir sjálfstætt starfandi sérfræðingar.