Algeng leið til að kenna árásargjörnu barni félagslega viðurkennda hegðun er að sýna því fyrirmynd sem bregst við erfiðum aðstæðum á viðeigandi hátt. Annað hvort sýnir kennari eða einhver annar hvernig er viðeigandi að bregðast við erfiðum aðstæðum eða þá að barnið er látið horfa á myndband þar sem leikari sýnir félagslega viðurkennda leið til að bregðast við aðstæðum sem barnið bregst venjulega við með árásargirni. Barnið er síðan látið herma eftir fyrirmyndinni í hlutverkaleik.
Kennarinn gefur nemandanum viðgjöf um hvernig honum tókst að leika þessa nýju færni sem var verið að kenna honum í hlutverkaleiknum. Barninu er endurtekið sýnd fyrirmynd sem það er látið herma eftir í hlutverkaleik og því er síðan hjálpað að yfirfæra þessa nýju færni á raunverulegar aðstæður.
Best er að þjálfunin fari fram í aðstæðum sem eru sem líkastar þeim sem hegðunin á að eiga sér stað í eftir þjálfunina. Í skólum í dag er gjarnan svigrúm til þess að hafa litla félagsfærnihópa, þar gæti þessi hlutverkaleikur farið eðilega fram.
