Kenna nemandanum að biðja um aðstoð

Stundum biður barn ekki um aðstoð þegar það þarf á henni að halda og fer því þess í stað að gera eitthvað annað heldur en að fylgja fyrirmælum kennara og gera þau verkefni sem það á að gera. Það er ekki endilega vegna þess að barnið þorir ekki að biðja aðstoð, heldur getur það verið vegna þess að það hefur ekki haft hagstæðar afleiðingar í för með sér áður. Til þess að kenna barninu að þessi aðferð virki skiptir máli að minna barnið á þessa leið og reyna að bregðast við uppréttri hönd barnins fljótlega eftir að þið sjáið hana uppi til þess að sýna barninu að þessi leið virki til að fá aðstoð og virki betur til þess að fá athygli og aðstoð heldur en óæskileg hegðun.

Einnig getur verið að barnið biðji ekki um hjálp því það er óöruggt í hópnum, er hrætt við að öðrum í hópnum kunni að finnast það heimskt og/eða að það hræðist gagnrýni og viðbrögð kennara og biður þar af leiðandi ekki um aðstoð. Fyrir börn sem þora ekki að biðja um hjálp en eiga augljóslega í vandræðum er mikilvægt að koma til þeirra og athuga hvernig þeim gengur og veita þeim aðstoð þegar þau þurfa. Einnig er hægt að semja við nemandann að biðja um hjálp á lítt áberandi hátt (minna áberandi en að rétta upp hönd) ef hræðsla við athygli bekkjarins er áhyggjuefnið. Til dæmis er hægt að fá nemandann til að setja ákveðinn hlut á ákveðinn stað á borðinu (til dæmis rauða reglustiku á hornið á borðinu) til að vekja athygli kennarans á því að hann vantar hjálp. Einnig þarf að skýra fyrir nemandanum að það er eindreginn vilji kennarans að hjálpa og útskýra og einnig að ræða við nemandann um að það sé í lagi að biðja um hjálp og að hans/hennar frammistaða sé engu síðri fyrir vikið.