Að veita áminningu er að láta barn vita að ákveðin hegðun þess hafi verið óæskileg. Atriði sem þarf að huga að þegar áminning er gefin:
- Passaðu að veita ekki óþarfa athygli þegar barninu er veitt áminning. Mikilvægt er að gefa áminningu eins fljótt og auðið er eftir að hegðun hefur átt sér stað.
- Styttri áminningar (um það bil þrjú orð eða áminning sem varir í þrjár eða fjórar sekúndur) bera meiri árangur heldur en lengri áminningar.
- Gott er að nota nafn barnsins þegar því er gefin áminning.
- Gefðu áminningar einslega en ekki opinberlega. Ef barnið er niðurlægt eða verður vandræðalegt vegna þess að þú áminntir það fyrir framan félagana getur gremja þess aukist.
- Ekki hækka málróm þinn en það getur orðið til þess að barnið verður ónæmt fyrir áminningum þínum. Það getur verið líklegra að barnið hlusti á þig ef þú notar eðlilegan málróm, ert róleg/ur og yfirveguð/aður.
- Mikilvægt er að horfa á barnið þegar þú talar við það. Ekki krefjast þess að barnið horfi í augun á þér því það getur verið niðurlægjandi fyrir barnið (athugið að þegar verið er að gefa börnum fyrirmæli er mikilvægt að ná augnsambandi við það en það sama á ekki við um áminningar).
- Það getur verið gott að snerta barnið þegar því er gefin áminning, eins og að leggja hönd á öxl þess.
- Stattu nálægt barninu (ekki lengra en einn metra frá því) þegar þú talar við það, en passaðu þó að halda ákveðinni fjarlægð til að virða persónurými barnsins.
- Ekki benda á barnið þegar þú gefur því áminningu. Það er oft vani að gera það og getur tekið nokkurn tíma að venja sig af því.
- Ekki reyna að eiga síðasta orðið, sérstaklega ef um ungling er að ræða. Frekar að hunsa óviðeigandi athugasemdir með öllu.
- Gott er að hrósa þegar barnið sýnir viðeigandi hegðun innan nokkurra mínútna frá því að áminning var gefin.
Dæmi um skammir „Mér finnst leiðinlegt hvernig þú öskrar á mig“.
Þar lýsir kennarinn því sem hann er óánægður með í fáum orðum, muna þarf að halda ró sinni vegna þess að í sumum tilfellum geta mikil viðbrögð verið „umbun“ fyrir barnið, það að skynja að því hafi tekist með hegðun sinni að gera hinn fullorðna reiðan.
