Ef talið er að vanvirkni barnsins viðhaldist af forðun eru mikilvægustu þættirnir í inngripi við þessari hegðun að:
- Passa að barnið komist ekki undan óeftirsóknarverðum aðstæðum í kjölfar hegðunarinnar.
- Reyna að gera óeftirsóknarverðar aðstæður yfirstíganlegri í huga barnsins svo að meiri líkur séu á því að barnið reyni að takast á við aðstæðurnar sem það vill forðast.
Fylgja fyrirmælum eftir
Ef vanvirkni viðhelst af forðun frá verkefnum skiptir máli að fylgja fyrirmælum vel eftir. Þegar bekknum eru gefin fyrirmæli um að vinna verkefni skiptir til dæmis máli að fara fljótlega til barnsins sem um ræðir og koma því af stað í vinnu, til dæmis með sýnidæmum og stýringu.
Brjóta niður verkefni í litlar einingar
Gott er að brjóta verkefni niður í litlar einingar og gefa barninu stutta pásu eftir að barnið lýkur hverri einingu.
Stuttar vinnulotur með pásum á milli
Gott getur verið að setja límmiða eða annað merki á þá staði í bókinni þar sem barnið má taka pásu, til dæmis við þriðja hvert dæmi í stærðfræðibók getur kennari skrifað upphafstafi sína. Barnið verður að vinna þangað til það kemur að upphafsstöfunum svo má það taka pásu.
- Ef barninu gengur mjög illa að hefja vinnu má byrja á því að fá barnið til að skrifa eingöngu eina línu (t.d. í skrift eða öðru skriflegu verkefni) eða leysa eitt dæmi (í stærðfræði) í einu áður en merkið kemur.
- Þegar kennari sér að barnið er ekki að vinna en hefur reiknað dæmin þrjú getur hann/hún farið til barnisns, hrósað því og gefið barninu stimpil eða skráð hvað klukkan er við hliðina á upphafsstöfunum sínum svo að auðveldara sé að fylgjast með því hversu lengi barnið er í pásu.
- Ef kennari kemur að barninu og það er ekki að vinna og hefur ekki farið eftir fyrirmælum er mikilvægt að stýra því til að vinna að næsta merki, hrósa stuttlega og gefa því aðra pásu.
Aðlaga markmið að frammistöðu barnsins
Ef barnið nær sjaldan markmiðum í kennslustund er mikilvægt að breyta þeim þannig að því takist oft að ná markmiðum og geti þannig verið sáttara við sjálft sig í skólanum.
Hjálpa barninu að upplifa sigra
Mikilvægt er að barn upplifi sigra í kennslustofunni. Gott er því að hrósa barninu fyrir það sem það gerir vel, hversu lítilvægt sem það kann að vera. Mikilvægt er einnig að veita viðleitni athygli hvernig sem árangurinn verður.
Láta foreldra vita þegar barnið hefur staðið sig vel
Það er nauðsynlegt að hafa samband við foreldra þegar barnið hefur staðið sig vel til að gefa þeim tækifæri til að hrósa og mögulega verðlauna heima á annan hátt fyrir góða frammistöðu í skólanum.
Fá foreldra í samvinnu
Ef grunur liggur á að foreldrar barnsins umbuni fyrir vanvirkni heima, til dæmis með því að bregðast við vanvirkni barnsins með því að leyfa því að hætta að læra og fara að leika eða inn í herbergið sitt, getur verið gott að hafa samband við foreldrana og láta þau vita að forðun sé mögulega að viðhalda vanvirkni barnsins. Gagnlegt er að foreldrar og kennara séu samtaka í því hvernig bregðast skal við þessari óæskilegu hegðun og er því mikilvægt að fá foreldra í samstarf.
Ef foreldrar fást ekki í samstarf eða þeim tekst ekki að breyta uppeldisaðferðum sínum getur starfsfólk skóla engu að síður náð árangri með inngripi sínu þótt það eigi sér eingöngu stað í skólanum. Ef inngripi er beitt markvisst í skólanum ætti barnið að læra með tímanum að það borgi sig ekki að vera vanvirkur í skólanum (eða nánar tiltekið í þeim aðstæðum þar sem inngripinu er beitt, til dæmis ef inngripinu er eingöngu beitt í skólastofu umsjónarkennara mun árangur líklegast bara nást þar). Með tímanum ætti barnið því að vera sífellt sjaldnar vanvirkt eða hætta því alveg – en halda því áfram heima þar ef þar er umbunað fyrir vanvirkni.
Hjálpa barninu að setja sér viðráðanleg markmið
Það getur verið gagnlegt að fá barnið í samvinnu um að setja sér viðráðanleg og raunhæf markmið og miða við sína eigin getu en ekki annarra.
Hjálpa barninu að ná meiri færni í efninu
Ef barni gengur illa að ná nýrri færni er það oft vegna þess að fimi hefur ekki verið náð í efninu sem kom á undan. Þá getur verið gott að skoða þá þætti sem þurfa að vera til staðar svo að barnið geti unnið nýja verkefnið. Reyna að finna út hvar veikleiki barnsins liggur og þjálfa síðan þann þátt eða þá þætti svo hægt verði að fá fram hegðunina sem er samsett úr þessum ólíkum þáttum sem það á eftir að öðlast fimi í.
Leyfa barninu að fara hraðar yfir verkefni
Ef grunur er um að verkefnin séu of auðveld fyrir barnið gæti verið gagnlegt að leyfa nemanum að fara hraðar í gegnum efnið en hann gerir nú.
Tengja efnið áhugamálum barnsins
Nauðsynlegt er að komast að því hver áhugamál nemandans eru. Fyrir yngra barn geta myndir sem tengjast áhugamálum þeirra gert mikið til að hvetja til vinnusemi. Barn getur til dæmis fengið að lita mynd eftir að það klárar 4 línur í bókinni sinni eða eftir að hafa setið kyrrt og skoðað bók í nokkrar mínútur (hvað sem óskað er eftir af barninu, sem sagt eftir því hvert markmiðið er).
