Það hefur reynst nemendum mjög vel að búta efni niður til að verkefni virki yfirstíganleg. Til dæmis að setja stimpil eða einhvers konar merki við línu eða dæmi í bók eða verkefnahefti svo að barnið viti hvenær það hefur lokið verkefninu eða hvenær það megi taka pásu. Til dæmis væri hægt að hafa slíkan límmiða á 2-3 stöðum á einni blaðsíðu svo að líklegra sé að barninu finnist verkefnið yfirstíganlegt. Gagnlegt er að leyfa barninu að taka þátt í þessari skiptingu svo það geti gert þetta sjálft síðar meir.
Líklegra er að börnum takist að klára verkefni ef hvert verk virðist vera skýrt, stutt og yfirstíganlegt. Takist barni að klára verkefni, jafnvel mörg stutt í hverjum tíma, eru meiri líkur til þess að það sé sáttara við eigin árangur og hafi þannig með tímanum meiri ánægju af verkefnavinnu.
Ef um leikskólaaðstæður eru að ræða er mögulega hægt að skipta samverustund eða matartíma í lotur, þar sem barn þarf að sitja í 5 mínútur svo fær það aðeins að standa upp eða skoða eftirsóknarvert leikfang, eftir það sest það niður í aðrar 5 mín og svo er þetta endurtekið.
