Nemandinn á erfitt með að muna fyrirmæli


Hafa fyrirmæli skrifuð

Ef barninu gengur erfiðlega að muna fyrirmæli kennarans getur verið gott að hafa þau skrifuð á töfluna eða útbúa myndræn tákn sem má nota endurtekið. Fyrir eldri börn er hægt að láta þau skrifa niður 2-3 punkta varðandi það sem þau eiga að gera til að þau eigi auðveldara með að muna.


Gefa barninu merki áður en fyrirmæli eru gefin

Gott er að gefa barninu merki til að aðstoða það við að taka eftir fyrirmælum og skrifa þau niður, til dæmis með því að lyfta upp spjaldi, klappa eða nota bjöllu áður en fyrirmæli eru gefin. Einnig má gefa barnahópnum merki.