Gerðar eru of litlar kröfur til nemandans


Prófa þyngri verkefni

Ef grunur leikur á að verkefnin séu of auðveld fyrir barnið gæti verið gagnlegt að prófa að leyfa því að vinna verkefni sem eru þyngri til að sjá hvort það kveiki á áhuganum og vinnusemi. Til dæmis má fara hraðar í gegnum efni vetrarins (einstaklingsmiðað nám) eða gefa barninu önnur verkefni sem reyna meira á skapandi hugsun eða rökhugsun. Í framhaldi af því getur barnið annað hvort fengið efni eldri bekkja eða önnur verkefni sem vekja áhuga þess.