Sumir nemendur verða svo niðursokknir í verkefnin sín, dagdrauma eða truflast svo af því sem er að gerast í stofunni að þeir missa hvað eftir annað af fyrirmælum. Einnig geta þau verið lengi að skipta athyglinni frá verkefnum að fyrirmælum og verið þá búin að missa af fyrri hluta þeirra þegar þau ná að byrja að hlusta. Þau skammast sín oft fyrir að verða sífellt að spyrja og reyna að átta sig sjálf á því hvað á að gera með misjöfnum árangri. Þetta er ekki kæruleysi og getur lagast með stuðningi. Margir nemendur sem eiga erfitt með að fylgjast með fyrirmælum eiga einnig erfitt með að muna fyrirmæli. Kennarar geta túlkað þetta sem óþekkt eða kæruleysi, áhugaleysi eða ögrun við kennarann. Vel upplýstur kennari áttar sig á því að svo er ekki ef þetta er mynstur í hegðun barnsins þannig að það þarf að styðja barnið til að ná árangri. Hér fyrir neðan eru nokkur ráð.
Gefa barninu merki áður en fyrirmæli eru gefin
Gott er að gefa barninu merki til að aðstoða það við að taka eftir fyrirmælum og skrifa þau niður, til dæmis með því að lyfta upp spjaldi, klappa eða nota bjöllu áður en fyrirmæli eru gefin. Einnig má gefa öllum barnahópnum merki. Gott er að líta yfir barnahópinn og bíða þar til allir eru að horfa á þig og gefa svo fyrirmælin.
Gefa einstaklingsfyrirmæli
Oft er nauðsynlegt að gefa barni einstaklingsfyrirmæli ef það á erfitt með að meðtaka fyrirmæli. Þá er gott að nota létta snertingu á öxl og augnsamband til að ná athygli þeirra fyrst.
Efla sjálfsstjórn með hegðunarsamningi
Mikilvægt er að hjálpa barninu að öðlast sjálfsstjórn, en til þess getur reynst vel að útbúa hegðunarsamning. Gott er að kennarar og aðrir sem koma að inngripinu skrifa undir hegðunarsamninginn.
Efla sjálfsstjórn með sjálfsskráningu
Til að efla sjálfsstjórn og auka líkurnar á því að barnið fylgist með fyrirmælum og sýni vinnusemi er hægt að nota sjálfsskráningu með eða án hegðunarsamnings. Barnið skráir hversu oft það fylgist með fyrirmælum en kennarinn skráir hversu oft hann gefur fyrirmæli. Berið svo saman bækur ykkar í lok tímans. Hrósið fyrir framfarir, hversu litlar sem þær eru. Gerið lítið úr bakslögum.
