Skapa gott samband við barn

Hér fylgja nokkur ráð um hvernig má skapa gott samband við barn sem gott er að fylgja almennt í samskiptum við börn en eru sérlega mikilvæg þegar börn eru með hegðunarvanda eða tilfinningalegan vanda.

  • Sýndu barninu áhuga og taktu eftir þegar það gerir vel. Notaðu félagslega umbun fyrir viðeigandi hegðun.
  • Gott er að spjalla við barnið í nokkrar mínútur daglega. Reyndu að komast að áhugamálum þess.
  • Láttu barnið finna að þú ert til staðar fyrir það ef eitthvað kemur upp á. Börn þurfa að hafa einhvern fullorðinn í skólanum sem þau geta leitað til. Sum börn geta þurft meiri „tryggingu“ en önnur til að þora að leita til þín en fái þau góða reynslu af því er líklegra að þau geri það aftur.
  • Það er mikilvægt að taka eftir tilraunum barnsins til að breyta óæskilegri hegðun sinni og hvetja það til að halda áfram ef því gengur vel en veita því vinalega ábendingu um hvað mætti betur fara ef þess er þörf.
  • Til að gera samskiptin persónulegri er gott að nota nafn barnsins (á eðlilegan hátt) þegar talað er við það.
  • Þegar verið að er að tala við barnið um hegðunarvandann þarf að gera það mjög varfærnislega og ekki eins og það sé verið að dæma barnið fyrir hegðun þess.
  • Það er oft gott byrja á að ræða við barnið um áhugamál þess eða eitthvað annað sem kemur hegðunarvanda þess ekki við til að tryggja að því líði vel og til að mynda gagnkvæman skilning/samkennd. Ef um ungt barn er að ræða getur reynst vel að leika við það, til dæmis púsla, spila eða taka þátt í öðrum leik sem barnið hefur gaman af.
  • Það er mikill munur á málfærni fullorðinna og barna og því er mikilvægt að nota skýrt og einfalt orðalag til að forðast allan misskilning í samskiptum við barnið. Þannig má t.d. forðast að barnið geri tilraun til að svara spurningu sem það skilur ekki og gefi því rangar upplýsingar. Það tekur barn um 20 ár að skilja öll orð sem eru notuð í daglegu tali, ekki búast við að barnið geti tjáð sig á skýran máta eða geti skilið öll orðin sem þú notar.
  • Börn tjá sig oft með öðrum hætti en fullorðnir. Það er því ekki víst að hægt sé að taka orð þeirra bókstaflega og hætta er á að fullorðnir mistúlki það sem barnið segir. Hægt er að forðast það með því að endurorða það sem barnið virðist vera að segja til þess að athuga hvort hinn fullorðni hafi skilið barnið rétt, spyrja barnið hvort viðkomandi hafi skilið rétt það sem barnið sagði og ef barnið staðfestir að samantektin sé rétt þá er hægt að halda samræðum áfram en taka saman reglulega og fá staðfestingu eða leiðréttingu á okkar skilning.
  • Það er mjög mikilvægt að mynda gagnkvæman skilning/samkennd við barnið og því mikilvægt að búa til og viðhalda hlýju og dómlausu umhverfi. Til þess að barnið sé tilbúið til að ræða hegðunarvandann við kennara (sem er oft mjög erfitt fyrir það) er gott að sýna því skilning og hlusta á það án þess að gefa álit á því sem það segir.
  • Til að sýna barninu skilning er mikilvægt að snúa sér að því þegar það er að tala og sitja í augnhæð við það. Hlý svipbrigði, rólegur og vingjarnlegur raddtónn og augnsamband sýnir einnig skilning og að kennarinn sé ekki að dæma það sem barnið er að segja. Með þessum hætti fást mun meiri upplýsingar heldur en ella. Einnig er mögulegt að gagnrýni eða skammir verði til þess að barnið forðist að segja seinna meir frá vanda sínum eða annarra í fjölskyldunni vegna ótta við að vera dæmt af öðrum eða að fá skammir.
  • Í samskiptum við barnið er mikilvægt að hafa athyglina við það sem barnið er að segja og sýna því skilning. Í því felst að snúa sér að barninu þegar það talar, vera kyrr, ekki vera að gera eitthvað annað á meðan, halda augnsambandi og hlusta og íhuga það sem sagt er. Með því að hlusta á það sem barnið hefur að segja minnkar möguleg fjandsemi og spenna á milli þess og kennarans.
  • Það getur reynst vel að veita líkamstjáningu athygli. Raddtónn, líkamsburður, svipbrigði og geðblær geta veitt mikilvægar upplýsingar um hversu þungbær vandinn er barninu og einnig er gott að fylgjast með ósamræmi á milli þess sem er sagt og líkamstjáningar. Til að mynda ætti að taka því sem barn segir með fyrirvara ef það segist líða almennt vel í skólanum og eiga nóg af vinum en er leitt á svipinn og órólegt. Aðstæðurnar geta þó einnig skýrt hvers vegna barnið er órólegt þannig að það verður að varast að lesa meira úr fas nemanda en tilefni er til.
  • Einnig er mikilvægt að muna það að þolinmæði er mjög mikilvæg þegar kemur að börnum. Heili barna er ekki fullþroskaður og bæði skilningur þeirra og tjáning er takmörkuð.
  • Mikilvægt er að muna að það tekur tíma að breyta hegðun, þetta gerist ekki á einni nóttu eða einum degi, það getur tekið vikur, mánuðir og ár að breyta hegðun, allt eftir því hversu oft hún hefur fengið að eiga sér stað áður en reynt er að breyta henni, eftir því hvaða afleiðingar hafa fylgt henni, hversu hratt og hversu oft og eftir því hvort viðkomandi kann aðra hegðun sem hefur sama tilgang og getur tekið yfir hina og verður jafnárangursrík eða enn árangursríkara og jafnvel auðveldari.