Dæmi um einfalt umbunarkerfi til að aðstoða barn að svara spurningum í verkefni eða á prófi:
- Teiknaðu 5 kassa efst á blað barnsins. Þeir eru til þess að teikna/líma í stjörnur.
- Þegar þú hefur teiknað upp þessa fimm kassa þá geturðu farið í gegnum næstu spurningu með barninu. Gott er að fara mörgum sinnum í gegnum fyrsta punktinn: „Hvað áttirðu að gera fyrst?” Ef barnið man að það átti að finna nafnorð í spurningunni þá fær það strax eina stjörnu í kassa eða þegar það sýnir viðleitni eða árangur. Sama gerist í næstu þremur spurningum.
- Í raun gerist ekki þörf á að hafa kerfið flóknara, þetta er bara gert til þess að barnið finni fyrir því að það sé að standa sig. Þú gætir þá hrósað barninu og til dæmis sagt eftir að barnið hefur unnið sér inn fimm stjörnur: „Mikið verða mamma og pabbi glöð þegar þau sjá hvað þú varst dugleg/ur/t í dag”.
