Ef frumgreining sýnir að barn eða unglingur hafi alvarleg frávik í þroska er barninu vísað til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar í nánari greiningu. Hlutverk hennar er að sinna börnum og unglingum með alvarlegar þroskaraskanir um allt land. Stöðin hefur þrjú fagsvið; fagsvið einhverfu, fagsvið hreyfi- og skynhamlana og fagsvið þroskahamlana. Þar er gerð nánari greining á þroskafráviki barns og/eða frumgreining staðfest. Í kjölfarið vinna ráðgjafar stöðvarinnar með þjónustuteymum í leik- og grunnskóla barnsins. Saman móta þessir aðilar áætlun fyrir barnið sem tekur til sérkennslu, þjálfunar og ýmissa stuðningsúrræða. Ráðgjafi fylgir eftir og/eða kemur inn í teymisvinnu í skóla barnsins ef þess er þörf. Þetta er metið út frá niðurstöðu greiningar og þörf fyrir sérhæfðri íhlutun. Þeir aðilar sem geta vísað á Ráðgjafar- og greiningarstöðvar eru starfsfólk heilsugæslu, oftast sérhæfðir barnalæknar eða sálfræðingar og sjálfstætt starfandi sérfræðingar.
