Aðferðir fyrir hópa

  • Hópstyrkingarskilmáli fyrir að veita óviðeigandi hegðun ekki athygli

    Það getur verið vandasamt að fá jafningja til að hunsa óviðeigandi hegðun nemanda. Hópstyrkingarskilmáli fyrir barnahópinn er hagkvæm aðferð þegar minnka á tíðni óviðeigandi hegðunar hjá nemanda sem styrkt er af athygli annarra nemenda. Settur er styrkingarskilmáli fyrir allan barnahópinn sem felur í sér að umbunað er fyrir hegðun hvers og eins nemanda eða þá hegðun hópsins…

  • Hvernig má koma í veg fyrir neikvæðan hópþrýsting þegar hópmiðuðum styrkingarskilmálum er beitt

    Ef einn eða fleiri nemendur ná aldrei settum markmiðum getur það orðið til þess að hin börnin í hópnum verða pirruð á þeim, stríða þeim eða setja óhóflegan þrýsting á þá. Þá verður að breyta skilmálunum eða hætta að nota hópmiðaða skilmála. Til að draga úr líkunum á neikvæðum afleiðingum hópmiðaðra styrkingarskilmála er hægt að…

  • Hópmiðaðir styrkingarskilmálar (group oriented contingencies)

    Inngrip til að breyta óviðeigandi hegðun er yfirleitt hannað þannig að tekið er mið af því að finna út hvað kallar á og viðheldur óviðeigandi hegðun barnsins. Þannig að ef einn nemandi sýnir truflandi hegðun vegna athygli sem hann fær frá samnemendum byggir inngripið á að minnka þessa athygli og að auka hagstæðar afleiðingar fyrir…