Uppskrift að táknbundnu styrkingarkerfi

  1. Fyrst þarf að ákveða hvaða hegðun á að breyta og skilgreina hana.
  2. Best er að reyna að breyta aðeins einni hegðun í einu eða fáeinum sem hafa áhrif hvor á aðra og byrja á þeirri hegðun sem veldur mestum vandræðum. Til að mynda tengjast vinnusemi og truflandi hegðun, ef barn er að trufla í kennslustund er ólíklegt að það sýni vinnusemi á sama tíma. Það er þó ekki víst að barn sýni vinnusemi þegar það er ekki að trufla kennslu. Hér væri annað hvort hægt að byrja að auka vinnusemi þar sem aukin vinnusemi minnkar óhjákvæmilega truflandi hegðun eða taka fyrir báðar tegundir hegðunar í einu.
  3. Það er mikilvægt að væntingar til barnsins séu viðráðanlegar, sanngjarnar og raunhæfar. Það felst í því að markmiðið má ekki vera það erfitt í fyrstu að barnið nær ekki að standast það, nota þarf hægfara námundun til að fara á milli kunnáttu eða færniþrepa eða kenna hluta af hegðun og síðan bæta við.
  4. Síðan þarf að ákveða hvaða tákn (token), eins og stig/punkta, límmiðar, broskallar eða gervipeningar, verða notuð í kerfinu en sú ákvörðun þarf að taka mið af aldri barnsins og áhugamálum. Það getur til dæmis verið við hæfi að gefa sex ára barni broskall fyrir viðeigandi hegðun en það á kannski ekki við þegar um unglinga er að ræða. Þá væri hægt að nota stig/punkta og verðlaun sem þeim þykir eftirsóknarverð eins og til dæmis að fá að vera lengur úti. Einnig þarf að tryggja að barnið hafi ekki aðgang að táknunum með öðrum hætti en þegar það er verðlaunað fyrir viðeigandi hegðun. Takmarka verður aðgang barnsins að verðlaununum og reyna að tryggja að það hafi ekki aðgang að þeim nema vegna bættrar frammistöðu.
  5. Einnig þarf að kveða hversu mörg tákn barnið fær fyrir viðeigandi hegðun í hvert skipti, og hversu mörg tákn það þarf til að fá verðlaun, þ.e. hver er kostnaður verðlauna.
  6. Ákveða þarf hver gefur táknin og hvenær þau verða gefin. Best er ef þau eru gefin tafarlaust eða eftir smá bið. Einnig þarf að ákveða hvenær styrkingarkerfið verður notað en það ræðst af því hversu viðtækur hegðunarvandi barnsins er.
  7. Því næst þarf að útbúa lista í samráði við barnið yfir þau verðlaun sem það getur fengið fyrir að sýna viðeigandi hegðun.
  8. Það þarf að ákveða hvenær verðlaun verða veitt. Hér þarf að huga að þörfum barnsins, til dæmis hversu lengi getur barnið beðið eftir að fá verðlaunin. Í flestum tilfellum þarf að veita punkta/stig ansi oft í upphafi en draga úr punktagjöfinni eftir því sem á líður ef velgengnin er góð. Einnig þarf að ákveða hvort verðlaunin verða veitt í skólanum eða heima hjá barninu. Mælt er með daglegri umbun til að byrja með, jafnvel oftar en einu sinni á dag ef barnið hefur litla þolinmæði og gefst yfirleitt fljótt upp. Það þarf að útbúa skráningarkerfi þar sem skráð eru táknin sem barnið hefur unnið sér inn og þau verðlaun sem barnið hefur skipt út fyrir táknin.
  9. Kynna styrkingarkerfið fyrir barninu
  10. Það er mjög mikilvægt að barninu sé veitt viðgjöf strax eða mjög fljótt eftir viðeigandi eða óviðeigandi hegðun. Það þarf að muna að veita félagslega umbun og veita athygli þegar viðeigandi hegðun á sér stað eða ef óviðeigandi hegðun á sér ekki stað í þeim aðstæðum sem hún gerir venjulega. Í slíku tilfelli þá nægir að hrósa fyrir góðu hegðunina, ekki minnast á óæskilegu hegðunina sem ekki átti sér stað í það skipti). Það að veita hrós og viðgjöf á frammistöðuna tryggir að viðeigandi hegðun viðhaldist þegar afmáun (setja link) styrkingarkerfisins hefst eða er lokið. Afmáun kerfisins þýðir ekki að barnið komi ekki lengur til með að fá verðlaun, það eingöngu þýðir að það verðlaunaafhending verður mun sjaldnar en á meðan að kerfið er í gangi, byrja á daglega eða oftar, draga svo úr í kannski 2-3 í viku, síðan 2 í viku, svo einu sinni í viku og enda á vikuleg eða á hálfsmánaðarfresti. Einnig er nauðsynlegt að gefa barninu áminningu þegar það sýnir óviðeigandi hegðun.
  11. Það getur reynst nauðsynlegt að breyta þeim verðlaunum sem barnið getur unnið sér inn þegar líður á inngripið til að koma í veg fyrir að barnið missi áhugahvötina og mikilvægt er að hafa úrval af verðlaunum.
  12. Eftir að barnið hefur unnið sér inn þau stig sem þarf til að fá verðlaun þarf að koma í veg fyrir að það geti hagað sér illa án þess að það hafi einhverjar afleiðingar.
  13. Þegar verðlaun hafa verið notuð til að auka viðeigandi hegðun (og/eða minnka óviðeigandi hegðun) þarf að minnka tíðni verðlauna smám saman, það er ákveða þarf hvenær afmáun á að hefjast og stíga varlega til jarðar og minnka fjölda verðlaunaafhendinga smátt og smátt.