Helstu einkenni eru:
- missa stjórn á skapi sínu,
- rífast við fullorðna,
- neita að fara eftir óskum og/eða reglum fullorðinna,
- pirra fólk vísvitandi,
- kenna öðrum um eigin mistök,
- vera hörundsár eða láta pirrast auðveldlega af öðru fólki,
- reiðast auðveldlega
- vera full/ur gremju, vera hefnigjarn/hefnigjörn.
Um 52% barna sem greinast með mótþróaröskun greinast síðar meir með hegðunarröskun og álíka hlutfall barna sem greinast með mótþróaröskun hafa áður verið greind með ADHD. Greining á mótþróaröskun getur því spáð fyrir um erfiðari hegðun í framtíðinni og því sérstaklega mikilvægt að meðferð við mótþróaröskun sé áhrifarík. Það sem gerir meðferð við mótþróaröskun flókna er hversu margar orsakir geta legið að baki henni og hversu algengt er að greiningin fylgi öðrum röskunum og/eða vandamálum. Þegar verið er að móta meðferð til þess að hafa áhrif á mótþróaröskun verður því að taka tillit til annarra raskana eða vandamála, ef þau eru til staðar, því annars er ekki líklegt að meðferðin verði árangursrík. Einstaklingsmiðuð meðferð við mótþróaröskun er því æskileg, eins og með flest önnur vandamál.
