Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL)

Þegar frumgreining hefur gefið upplýsingar um geðrænan vanda hjá barni/unglingi getur farið af stað ferli sem leiðir til tilvísunar á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). BUGL samanstendur af einni göngudeild og tveimur legudeildum; barna- og unglingadeild. Ef frumgreining gefur upplýsingar um geðrænan vanda má vísa máli barns til nánari greiningar til göngudeildar BUGL og mögulega má fá innlögn fyrir barnið á legudeild ef fagfólk göngudeildar metur þörf á því. Þeir aðilar sem geta vísað málum til BUGL eru sérfræðilæknar, heilsugæslulæknar, sálfræðingar og aðrir sérfræðingar sem vinna sjálfstætt eða í leik- og grunnskólaþjónustu, félagsþjónustu eða hjá Barnavernd.