Lýsandi hrós er hrós þar sem tekið er fram fyrir hvaða hegðun er hrósað. Það er mikilvægt að nota hnitmiðað og beint hrós. Það tryggir að barninu fær að vita fyrir hvað er verið að hrósa. Dæmi um slíkt hrós er að segja „Ég er ánægð að þú vannst verkefnið allan tímann og truflaðir hina krakkana ekkert” og „vá hvað þú varst dugleg/ur að ganga frá disknum þínum“. Þarna kemur skýrt fram hvaða hegðun sem barnið sýndi er kennarinn ánægður með. Það er einnig mjög mikilvægt að barninu sé veitt viðgjöf strax eða mjög fljótt eftir viðeigandi (eða óviðeigandi) hegðun. Hrós og viðgjöf sem á sér stað mjög fljótlega eftir að hegðun hefur verið sýnd eru áhrifaríkust.
