Þessi kvíðaröskun er algengari hjá unglingum en börnum. Algengt er að helstu áhyggjur barnsins snúist um það að fá kvíðakast og/eða að upplifa áhrif kvíða á líkamann. Barn með felmtursröskun vill gjarnan forðast þær aðstæður þar sem það hefur fengið kvíðakast áður eða þar sem það heldur að það geti mögulega fengið kvíðakast.
- Lesið einnig almenn ráð vegna kvíða.
- Ef þig grunar að barn í þínu umhverfi sé með einkenni felmtursröskunar þá er mikilvægt að fá aðstoð fagaðila. Mikilvægt er að vinna með kvíða barnins í samvinnu við þjónustuteymi þess og tengda fagaðila.
- Barn með felmtursröskun getur í flestum tilfellum ekki náð að stjórna kvíðaköstum sínum án þess að skilja hvers vegna kvíðaköst eiga sér stað. Mikilvægt er því að barn með felmtursröskun læri á kvíðaeinkenni sín og hvernig það getur náð stjórn á þeim með hjálp foreldra sinna og sálfræðings eða annars fagaðila sem getur kennt barninu áhrifaríkar aðferðir til að stjórna kvíða sínum. Aðstoð frá fagaðila er því mjög mikilvæg.
