Áður en ákveðið er að breyta hegðun skiptir máli að skilgreina hana fyrst svo allir séu sammála um hvaða hegðun eigi að breyta. Best er að reyna að breyta aðeins einni hegðun í einu. Stundum er þörf á því að breyta margskonar hegðun í einu ef samspil á sér stað milli ólíkrar hegðunar.
Skilgreining á hegðun þarf að vera skýr, hlutlæg og tæmandi. Það er mikilvægt að nota skýrt orðalag og tilgreina nákvæmlega þá hegðun sem um ræðir. Til að mynda er betra að segja að barnið eigi að leysa rétt 10 samlagningardæmi í stað þess að segja að það eigi „að vera duglegt að reikna” þar sem ekki er ljóst hvað felst í því „að vera duglegur” og matið á því getur verið mjög misjafnt milli aðila. Hlutlæg skilgreining gerir það að verkum að hægt er að telja hegðunina sem er sjáanleg og því geta tveir einstaklingar verið sammála um að hún hafi átt sér stað eða ekki, til dæmis er hægt að telja hvort barnið hafi reiknað samlagningardæmi og hversu mörg en erfiðara að telja „dugnaður” ef fólk er ekki sammála um hvað felist í því. Tæmandi skilgreining er sú sem tilgreinir öll tilfelli hegðunarinnar sem á að breyta og aðgreinir hana frá annarri hegðun sem gæti verið svipuð þeirri sem verið er að fylgjast með og telja en er samt ekki sama hegðunin. Ef svo er fer það ekki á milli mála hvenær viðeigandi (og óviðeigandi) hegðun hefur átt sér stað og því auðvelt að vita hvenær eigi að verðlauna fyrir hegðun og skrá að viðeigandi (eða óviðeigandi) hegðun hafi átt sér stað eða ekki.
Dæmi um skilgreiningu á truflandi hegðun: að standa upp án leyfis, að ganga um stofuna án tilgangs, að tala án leyfis um eitthvað ótengt verkefninu, búa til hávaða, pota í aðra nemendur, að fikta í eða taka dót úr hillum án leyfis, kasta dóti, að mótmæla kennaranum og grípa fram í, að skella hurðinni á eftir sér og valda hávaða.
Dæmi um skilgreiningu á hegðuninni að pirra aðra: Nemandi tekur leikfang af leikfélaga sínum án leyfis, uppnefnir leikfélaga sinn, potar í með líkamspart eða öðrum hlut í leikfélaga sinn, sparkar í stólinn hans, gerir grín að öðrum endurtekið.
