Ef talið er að mótþrói barnsins viðhaldist af forðun eru mikilvægustu þættirnir í inngripi við mótþróa að:
- Passa að barnið komist ekki undan óeftirsóknarverðum aðstæðum í kjölfar hegðunarinnar.
- Reyna að gera aðstæðurnar sem barnið forðast yfirstíganlegri í huga barnsins svo að meiri líkur séu á því að barnið reyni að takast á við aðstæðurnar sem það vill forðast.
Fylgja fyrirmælum eftir
Ef mótþrói viðhelst af forðun frá verkefnum skiptir máli að fylgja fyrirmælum vel eftir. Þegar barnahópnum eru gefin fyrirmæli skiptir til dæmis máli að fara fljótlega til barnsins sem um ræðir og koma því af stað í vinnu, til dæmis með sýnidæmum og stýringu.
Kenna viðeigandi hegðun
Mikilvægt er að kenna barninu hegðun sem getur komið í staðinn fyrir mótþróafulla hegðun, þ.e. hegðun sem hefur sama tilgang og mótþróafulla hegðunin. Ef barnið hefur sögu um að komast undan óeftirsóknarverðum aðstæðum með mótþróafullri hegðun mun slík hegðun mun að öllum líkindum halda áfram að koma fram ef barnið lærir ekki að nota aðra hegðun í staðinn sem virkar jafn vel eða betur. Gagnlegt er að láta nýju hegðunina vera auðveldari og fyrirferðaminni í framkvæmd en óæskilega hegðunin.
Dæmi: Að kenna barninu setningu eða spurningu sem virkar mjög vel til þess að fá pásu. Þessi setning verður að gefa barninu fyrirfram skilgreinda pásu í hvert skipti sem barnið óskar eftir því í fyrstu til þess að kenna barninu að æskilega leiðin virki jafn vel og sú óæskilega (mótþróakennd hegðun virkar venjulega alltaf til þess að komast undan verkefnum, þó það sé ekki nema rétt á meðan óæskilega hegðunin á sér stað). Eftir því sem barnið lærir að sýna nýju hegðunina (æskilegu) í stað mótþróa og sýnir hana æ oftar þá er hægt að auka kröfurnar sem gerðar eru til barnsins. Dæmi um það er að barnið megi ekki fá pásu fyrr en eftir x mörg dæmi eða eftir x margar mínútur.
Smám saman má síðan láta þessa spurningu hafa minna vægi, til dæmis verður pásan styttri eða barnið má bara biðja um pásu tvisvar í hverri kennslustund.
Fylgjast með og stýra
Ef barnið fer eftir fyrirmælum en gefst upp og virðist líklegt til þess að sýna mótþróafulla hegðun, til dæmis vegna þess að það ræður ekki við verkefnið eða finnur til vanmættis, er gott að fara til barnins og stýra því í gegnum stutt verkefni og leyfa því síðan að taka pásu. Þannig reynum við að kenna barninu að mótþróafull hegðun verði ekki til þess að fá pásu, heldur það að vinna verkefnið sitt.
Brjóta niður verkefni
Gott er að brjóta verkefni niður í litlar einingar og gefa barninu stutta pásu eftir að barnið lýkur hverri einingu. Gott getur verið að setja límmiða á þá staði í bókinni sem barnið má taka pásu. Líka ef barnið á erfitt með að liggja lengi í hvíld er hægt að skipta niður tímanum sem barnið þarf að liggja. Ef barninu gengur mjög illa er hægt að hafa tímann mjög stuttann fyrst en svo auka kröfurnar. Gott er að kenna barninu að rétta upp hönd þegar það hefur náð markmiðinu.
Forðast of löng verkefni
Brjótið verkefni frekar niður í viðráðanlegar einingar og leyfið barninu að taka pásu á milli þeirra frekar en að ætlast til þess að barninu og þá mögulega leyfa barninu að gefast upp í miðju kafi.
Láta barnið upplifa sigra
Ef barnið nær aldrei markmiðum í kennslustund er mikilvægt að breyta þeim þannig að því takist oft að ná markmiðum og geti þannig verið sáttara við sjálft sig. Nauðsynlegt getur verið að brjóta verkefnið niður í smá skref og þegar barnið hefur náð að klára fyrsta skrefið þá fyrst er farið í næsta skref.
Mikilvægt er að barn upplifi sigra. Gott er því að hrósa barninu fyrir það sem það gerir vel, hversu lítilvægt sem það kann að vera. Mikilvægt er einnig að veita viðleitni og öllum framförum athygli.
Nauðsynlegt er að hafa samband við foreldra þegar barnið hefur staðið sig vel til að gefa þeim tækifæri til að hrósa og mögulega verðlauna á annan hátt fyrir góða frammistöðu heima
Fá foreldra í samvinnu
Ef grunur liggur á að foreldrar barnsins umbuni fyrir mótþróafulla hegðun heima, til dæmis með því að bregðast við mótþróafullri hegðun barnsins með því að leyfa því að hætta að læra og fara að leika, getur verið gott að hafa samband við foreldrana og láta þau vita að forðun sé mögulega að viðhalda mótþróafullri hegðun barnsins. Gagnlegt er að foreldrar og kennarar séu samtaka í því hvernig bregðast skal við þessari óæskilegu hegðun og er því mikilvægt að fá foreldra í samstarf. Ef foreldrar fást ekki í samstarf eða þeim tekst ekki að breyta uppeldisaðferðum sínum þá getur starfsfólk skóla engu að síður náð árangri með inngripi sínu þótt það eigi sér eingöngu stað í skólanum. Ef inngripi er beitt markvisst í skólanum ætti barnið að læra með tímanum að það borgi sig ekki að sýna mótþróa í skólanum (eða nánar tiltekið í þeim aðstæðum þar sem inngripinu er beitt, til dæmis ef inngripinu er eingöngu beitt í skólastofu eða á deild barnsins mun árangur líklegast bara nást þar). Með tímanum ætti barnið því að vera sífellt sjaldnar mótþróafullt eða hætta því alveg – en halda því áfram heima þar sem athygli fæst enn fyrir mótþróa.
Hjálpa barninu að setja sér viðráðanleg markmið
Það getur verið gagnlegt að fá barnið í samvinnu um að setja sér viðráðanleg markmið og miða við sína eigin getu en ekki annarra.
Athuga grunnfærni nemandans
Ef barni gengur illa að ná nýrri færni er það oft vegna þess að fimi (fluency) hefur ekki verið náð í efninu sem kom á undan. Þá getur verið gott að skoða þá þætti sem þurfa að vera til staðar svo að barnið geti unnið nýja verkefnið, reyna að finna út hvar veikleiki barnsins liggur og þjálfa síðan þann þátt upp. Foreldrar gefa eflaust tekið þátt í þessari þjálfun.
Ef grunur er um að verkefnin séu of auðveld fyrir barnið gæti verið gagnlegt að leyfa nemanum að fara hraðar í gegnum efnið en hann gerir nú.
Komast að áhugamálum nemandans
Nauðsynlegt er að komast að því hver áhugamál nemandans eru. Því fyrir yngra barn geta myndir sem tengjast áhugamálum þeirra gert mikið til að hvetja til vinnusemi. Barn getur til dæmis fengið að lita mynd eftir að það klárar 4 línur í bókinni sinni eða eftir að hafa setið kyrrt og skoðað bók í nokkrar mínútur (eða eftir að barnið hefur framkvæmt það sem óskað var eftir).
