- Lesið einnig almenn ráð um kvíða.
- Mikilvægt er að vinna með kvíða barnins í samvinnu við þjónustuteymi og tengda fagaðila.
- Þegar börn eru í félagslegum aðstæðum sem þau óttast eiga þau til að einbeita sér að sjálfum sér og skoða hvernig líkaminn er að bregðast við aðstæðunum. Þannig geta þau orðið órólegri og kvíðnari en þau voru fyrir. Gott getur verið að kenna barni með kvíða að einbeita sér að einhverju öðru í nýjum aðstæðum, til dæmis að telja hversu margir eru í einhverju grænu í dag eða skoða hvað er á veggjunum, til þess að þau geti tekið fókusinn frá sjálfu sér.
- Kennari getur útskýrt fyrir barninu að heilinn sé að vara við hættum allan daginn. Til dæmis er hægt að útskýra fyrir barninu að heilinn segi okkur oft á dag: „Ef það er smá áhætta þá skaltu ekki gera það“ en heilinn ætti samt bara að segja svona þegar það er mikil áhætta. Gott er að útskýra að þar sem að heilinn segi þetta mörgum sinnum á dag þá sé ekki alltaf að marka viðvaranir hans, fólk verður því bara sjálft að vita betur og segja við sig: „Það er ekki líklegt að neitt slæmt gerist. Þetta get ég!“
- Einnig getur verið gott að útskýra fyrir barninu að þegar heilinn segir: „Það er smá áhætta“ þá vill heilinn að líkaminn undirbúi sig til þess að hlaupa í burtu. Til dæmis undirbýr líkaminn sig með því að láta hjartað slá hraðar. Þegar við finnum að líkaminn er að undirbúa sig til þess að flýja þá förum við gjarnan að trúa því að það sé eitthvað að óttast. Þess vegna er gott að hafa í huga að þegar við verðum kvíðin og hrædd þá er það oft vegna þess að við finnum að líkaminn er að undirbúa sig fyrir að hlaupa burt. Þegar þetta gerist er gott að minna sig á: „Líkaminn er bara að bregðast við falskri viðvörun frá heilanum. Það er ekkert hættulegt að gerast“. Ef við minnum okkur á þetta er auðveldara að róa sig og slaka á. Þá fer kvíðinn fyrr í burtu.
- Gott er að útskýra fyrir barninu að tilfinningar séu eins og öldur í sjónum, þær koma og þær fara. Þegar þær koma getur verið gott að einbeita sér að því sem er að gerast í umhverfinu og reyna að slaka á þar til aldan fer hjá. Mikilvægt er þó að útskýra að það sé eðlilegt að finna fyrir svona tilfinningum og maður eigi ekki að reyna að losa sig við þær heldur viðurkenna að þær séu þarna, reyna að slaka á og leyfa þeim að fara sjálfum.
- Mikilvægt er að útskýra að kvíði er mestur áður en maður tekst á við það sem manni finnst erfitt, svo fer hann þegar maður venst aðstæðum.
- Gott er að nota tækifæri sem gefast til þess að útbúa verndaðar félagslegar aðstæður þar sem barnið getur æft samskipti við önnur börn.
- Gott er að nota hægfara námundun til þess að fá barnið til þess að taka þátt í starfi skólans og félagslegum athöfnum með öðrum börnum.
