Ef talið er að barnið gefi frá sér ljót orð til þess að fá athygli frá öðrum eru mikilvægustu þættirnir í inngripi að:
- takmarka athygli fyrir óæskilega hegðun eins og mögulegt er.
- sýna barninu athygli fyrir æskilega hegðun eins oft og mögulegt er.
Takmarka athygli sem bekkjarfélagar veita óæskilegri hegðun
Mikilvægt er að reyna að takmarka athygli sem bekkjarfélagar gefa barninu fyrir mótþróafulla hegðun. Sjá einnig umfjöllun um hópmiðaða styrkingarskilmála og Góð hegðun – leikurinn.
Taka eftir æskilegri hegðun
Mikilvægt er að veita viðeigandi orðbragði athygli en hunsa ljótt orðbragð. Það er til dæmis hægt að veita athygli fyrir viðeigandi orðbragð með því að klappa barninu á öxlina og segja við það ,,Flott hjá þér að nota fallegt orðbragð” eða „Oh, hvað þú talar fallega!” en hunsa hegðun barnins ef það notar ljótt orðbragð (því hvers kyns athygli hefur viðhaldið vandanum hingað til). Skammir og áminningar eru athygli og geta viðhaldið óæskilegri hegðun, passið því að hunsa hegðunina algjörlega. Athugið að það að horfa á barnið, ná augnsamband við það, sýna viðbrögð með svipbrigðum, hrista höfuð eða bendingum er athygli líka.
Einnig er gott að veita barninu jákvæða athygli í hvert sinn sem þið takið eftir því að barnið gerir eitthvað sem er æskilegt. Dæmi: ef barnið vinnur verkefnið sitt, situr kyrrt, hlýðir fyrirmælum, hlustar, o.s.frv.
Með því að taka eftir og umbuna fyrir hvaða æskilegu hegðun sem er og takmarka athygli fyrir óæskilegu hegðunina ætti barnið ekki að fá oftar athygli fyrir óæskilega hegðun en æskilega hegðun. Ef barnið fær mikla athygli fyrir æskilega hegðun eru minni líkur á því að barnið noti ljótt orðbragð – þ.e. ef athygli hefur viðhaldið óæskilegri hegðun þess.
Ein leið til þess að passa upp á að barnið fái athygli fyrir æskilega hegðun er að sýna barninu athygli á fyrirfram skilgreindum tíma. Til dæmis er mögulegt að láta úrið sitt eða síma gefa lítið frá sér hljóð á 5-10 mín fresti, til þess að minna kennara eða annað starfsfólk skóla, á að líta á barnið sem um ræðir, finna eitthvað sem barnið er að gera vel og hrósa því fyrir það.
Með þessu er reynt að passa að barnið fái ekki athygli fyrir ljótt orðbragð heldur það sem barnið gerir vel. Hrósið gæti verið: ,,Rosalega er ég ánægð/ur með þig þegar þú vinnur verkefnið þítt! Flott hjá þér!”.
Hunsa óæskilega hegðun
Ef athygli virðist viðhalda hegðun barnsins þarf að passa að tekið sé á hegðun barnsins á þá vegu að sem minnst athygli hljótist af því. Ljótt orðbragð er dæmi um hegðun sem yfirleitt má hunsa, sjá umfjöllun um virka hunsun. Ef barnið notar ljótt orðbragð sem ekki er hægt að hunsa, t.d. særir tilfinningar annars barns, er mikilvægt að grípa inn í en sýna barninu þó eins litla athygli og mögulegt er. Gott er að teymi barnins komi að því að ákveða hvernig skuli taka á hegðun barnsins. Teymi getur verið foreldrar saman og aðrir í fjölskyldunni eða sem koma að umönnunum og uppeldi barnsins eða getur einnig verið foreldra og kennara saman.
Fá foreldra í samvinnu
Ef grunur liggur á að foreldrar barnsins umbuni fyrir ljótt orðbragð heima, til dæmis með athygli, getur verið gott að hafa samband við foreldrana og láta þau vita að athygli sé mögulega að viðhalda ljótu orðbragði barnsins. Gagnlegt er að foreldrar
Ef grunur liggur á að foreldrar barnsins umbuni fyrir ljótt orðbragð heima, til dæmis með athygli, getur verið gott að hafa samband við foreldrana og láta þau vita að athygli sé mögulega að viðhalda ljótu orðbragði barnsins. Gagnlegt er að foreldrar og kennara séu samtaka í því hvernig bregðast skal við þessari óæskilegu hegðun og er því mikilvægt að fá foreldra í samstarf. Þegar allir eru samtaka tekur minni tíma að sjá árangur. Hins vegar ef foreldrar fást ekki í samstarf eða þeim tekst ekki að breyta uppeldisaðferðum sínum þá getur starfsfólk skóla engu að síður náð árangri með inngripi sínu þótt það eigi sér eingöngu stað í skólanum. Ef inngripi er beitt markvisst í skólanum ætti barnið að læra með reynslunni að það borgi sig ekki að nota ljótt orðbragð í skólanum (eða nánar tiltekið í þeim aðstæðum þar sem inngripinu er beitt, til dæmis ef inngripinu er eingöngu beitt í skólastofu mun árangur líklegast bara nást þar). Með inngripinu ætti barnið því að minnka ljótt orðbragð eða hætta því alveg – en halda því áfram heima þar sem athygli fæst enn fyrir hegðunina.
Kennið foreldrum að hjálpa barninu að tjá sig kurteislega.
