Kvíði

Kvíðin börn sýna oft ekki kvíðaeinkenni í skólaumhverfinu. Þau reyna gjarnan að vera fullkomin og fela hræðslu og kvíða fyrir öðrum. Kvíði getur engu að síður haft áhrif á minni, félagsfærni, einbeitingu, athygli sem og skólamætingu og hvata og getu til þess að læra. Mikilvægt er því að bregðast við ef grunur leikur á að nemandi hafi kvíðakenndar hugsanir.

Hugsanir sem kalla fram kvíða lýsa sér yfirleitt þannig að barnið telur að miklar líkur séu á því að kvíðvænlegar aðstæður komi upp og að það hafi litla getu til þess að takast á við þær.

Kvíðavekjandi hugsanir koma oftast ósjálfrátt upp í hugann.

Ósjálfráðar hugsanir koma ekki fram vegna skynsamlegra og rökrétta hugleiðinga heldur kalla aðstæður í umhverfinu ósjálfrátt á þær.

Hugsanirnar eru yfirleitt óskynsamlegar en virðast sannar og er tekið sem sannleika, sérstaklega ef tilfinningarnar sem fylgja þeim eru sterkar. Neikvæðum, ósjálfráðum hugsunum fylgja yfirleitt óþægilegar tilfinningar og talsvert uppnám.

Almenn ráð vegna kvíða

Félagsfælni

Kjörþögli

Prófkvíði

Felmtursröskun

Aðskilnaðarkvíði

Árátta og þráhyggja

Fullkomnunarárátta

Barn neitar að fara í skóla eða hefur skólatengdan kvíða